Aðalvalmynd

Auglýsing

Ný bloggasíða

20. júlí 2007 klukkan 22:59
jæja, ég er eiginlega búin að gefast upp á þessari  bloggsíðu...
allir að kíkka á nýja bloggið mitt. það er allt í vinnslu en er búin að setja nokkrar myndir og smátterís blogg þar. ekkert merkilegt samt.
en tékkið á þessu

http://www.123.is/reykdal :)

Hæhæ

12. júlí 2007 klukkan 21:02
jæja.. ég byrjaði í sumarfríi á Mánudaginn og á Sunnudaginn var ég í göngutúr með Njáli og Eddu Báru þegar ég fékk þá góðu hugmynd að bjóða Almari ( stráknum hans Atla ) í heimsókn í einhvern tíma. Og á mánudaginn mætti hann galvaskur og búinn að vera í heimsókn hjá okkur síðan þá og verður eittthvað áfram og við erum nú búin að bralla ýmislegt saman. Fórum í Kjarnaskóg og sundlaugargarðinn og svo erum við búin að vera að dunda hitt og þetta. Hann og Max eru orðnir óaðskiljanlegir, ef Almar skreppur út í smá stund og hefur ekki Max með sér stendur hann í hurðinni horfir út um gluggann og vælir bara.
En áðan fórum við að labba útí Glerárdal og ég hafði myndavélina mína með og náði nokkrum flottum myndum
Svo tók ég líka myndir þegar við vorum á pallinum í sólinni með sápukúlur.

Ætlaði að setja þær hér inn en það gengur brösulega Öskrandi
Kannski maður fari að skoða aðra heimasíðu!

Jæja Fréttir!

08. júlí 2007 klukkan 19:10
Jæja ég sá að ég yrði að fara að koma með fréttir.
En allavega, þá fórum við Njáll, eftir mikið erfiði, og keyptum VESPU! Sem er bara snilld fyrir utan að ég er pínu smeik á henni sem er bara aulaskapur.
Svo fórum ég, mamma og Njáll í útilegu til Egilsstaða og við erum kannksi að fara að flytja þangað.
Ég er að fara á miðivikudaginn í atvinnuviðtal fyrir álverið á Reyðarfirði og Njáll líka þannig við erum bara kannski komin með vinnu og þá erum við að flytja austur, sem verður spes, en kannksi gaman líka.
Ég varð miður mín á Egilsstöðum, fórum að skoða Véltækjasafnið þar sem er fullt af flottum gömlum bílum sem einhver maður er búin að vera að sanka að sér og hefur ætlað sér að gera þetta þvílíkt flott en í staðinn standa þeir úti allt árið og ryðga ÖMURLEGT!!!! Ég þarf að fara og bjarga þessum bílum.
En ég man ekki eftir neinu öðru skemmtilegu ég geri aldrei neitt og þar af leiðandi gerist ekkert spennandi hjá mér... bitur sannleikur

En matur!

HAHA

03. júlí 2007 klukkan 22:19
http://www.youtube.com/watch?v=Z4Y4keqTV6w

Allir að skoða þetta...þetta er bara snilld og gamli maðurinn er svo krúttlegur
Þetta er soltið langt en alveg klárlega þess virði hló mig máttlausa Svalur

Vespa?

16. júní 2007 klukkan 20:28
er málið að fara að keyra um á vespu? Er búin að ákveða að taka mótorhjólaprófið næsta sumar og ætla að kaupa hjól þá Svalur verð alveg ofursvöl ;) en allavega þá var ég að spá hvort maður ætti að fá sér vespu, tryggingin er nánast engin og eyðir eiginlega engu. LAngar þetta alveg rosalega ódýrt og gott, spara held ég alveg helling á þessu bensínkostnaðurinn verður nánast enginn ef maður er að fara á vespunni í vinnu eða eitthvað.  Er vespa málið spyr ég? Óákveðinn Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst

Ekki viðbjargandi

11. júní 2007 klukkan 14:00
ákvað að koma með smá fréttir. ekki að það sé eitthvað mikið búið að gerast, en allavega þá var ég með Max í göngutúr í gær og var að hoppa yfir læk þegar ég renn til og dett og tókst að sjálfsögði að slasa mig. Fór uppá slysó í morgun og fékk að vita það að ég er tognuð í öxlinni minni og það er sko ekkert sérstaklega þægilegt, er geðveikt máttlaus í hendinni og allt í rugli. En ég ákvað að fara ekki í vinnuna í dag og ekki á morgun þar sem ég er svona í hendinni og þá geri ég ekkert gagn þegar mér líður svona. En er að spá í að fara að slappa af.

Fréttir?

05. júní 2007 klukkan 16:38
ekki frekar en venjulega, það gerist ekki neitt, fór samt til læknis í gær og blóðprufu í dag til að athuga hvort ég sé of blóðlítil og eitthvað vesen, en það er ekkert alvarlegt. Gekk allavega betur í blóðprufu núna heldur en fyrir 2 árum eða eitthvað þegar það þurfti að nudda niður eftir upphandleggsvöðvanum til að það væri hægt að taka blóð hehe. frekar fyndið. En eins og þetta er nú spennandi blogg þá hef ég voða lítið að seigja, er bara alltaf heima að gera ekki neitt nema þegar ég fer annaðslagið með Max í göngutúr. En ég skrifa kannksi eitthvað meira hér seinna ef eitthvað brjálað athyglisvert gerist.Glottandi je right eitthvað brjálað athyglisvert hahahahaha

duddudurdudududu

15. maí 2007 klukkan 19:24
duddurududuuu  that's the way aha aha i like it aha aha
duddu dudududu í like it aha aha
ice ice baby
ÉG fíla dilla dilla, ég fíla dilla dilla, ég fíla dilla dilla DILLA! újé
Pump up the jam
Pump it up
While your feet are stompin
dudududuudududu

Fleiri hugmyndir?

Til Sölu

05. maí 2007 klukkan 19:58
nú er þetta orðið svart... mamma og Njáll eru orðin svo leið á að hafa mig heima að þau eru búin að gera sölu auglýsingu á mig.
Hún hljómar svona:
Til sölu, lítið notuð... kvennskostur góður. enginn heimannmundur
tilboð óskast.

 Óákveðinn

Sumarið er tímin... þegar mér líður best

29. apríl 2007 klukkan 17:27
ég held að veðurguðirnir séu orðnir klikkaðir, ég veit ekki hvernig ég á að vera bara, það er geðsjúkt veður hérna á Akureyrinni minni.
En ég sé sko ekkert eftir að hafa beilað á djamminu í gær það er búið að vera svo gott veður að ég hefði ekki viljað hanga inni í dag. Vaknaði snemma í morgun og er bara búin að vera úti síðan þá. Geðveikt.Svalur
En annars er bara helgin búin að fara það að vera úti og í afslöppun. Nema í fyrsta skipti síðan ég fékk bílpróf þá stoppaði löggan mig í gær og ég var ekki með ökuskírteini eða skilríki eða neitt á mér þannig ég bauð löggunni lækna miðann minn en hún vildi hann ekki. En þetta var bara svona verið að stoppa alla og láta blása og athuga skírteinið og svona, var nú ekkert alvarlegt. En ég er að spá í að fara og skola skítinn af bílnum mínum og skipta um dekk, ég aula einhverju útúr mér seinna inná þetta blogg.
Gleðilegt sumarSvalur

Ég =)

  • Nafn: Íris Björk
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: vinna á Leikskóla

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...